Gæðagreinar

Gæðagreinar

Gæðagreinar eru hjálpartæki við sjálfsmat skóla. Efnið er þýtt úr skosku sjálfsmatskerfi sem kallast "How Good is Our School?" Matstækið samanstendur af sjö lykilþáttum sem innihalda 33 gæðagreina sem hver um sig hefur eitt til fimm þemu.  Skólaskrifstofa Skagafjarðar þýddi og staðfærði gæðagreinana.  Góður leiðarvísir um notkun greinanna er aðgengilegur á heimasíðu.

Matið byggir á að leita svara við þremur grundvallarspurningum:

  • hvernig stöndum við okkur?
  • hvernig vitum við það?
  • hvað gerum við næst?

Ef Gæðagreinar eru notaðir í heild sinni í innra mati skóla telst matið altækt skv. viðmiðum mennta- og menningamálaráðuneytis þar sem það nær til helstu þátta skólastarfsins og notar fjölbreyttar leiðir við gagnaöflun.

Gæðagreinar eru notaðir í grunnskólum í Skagafirði og víðar um land.  Árskóli í Skagafirði hefur hvað mesta reynslu að notkun Gæðagreina þar sem hann hefur byggt sjálfsmat sitt á þeim frá 1999:  http://www.skagafjordur.is/displayer.asp?cat_id=1187    

Tilgangur Gæðagreina er að hjálpa starfsfólki skóla við að meta gæði skólastarfsins. 

Framkvæmd og gagnaöflun er í höndum starfsfólks skólans.  Hægt er að fara margar leiðir við að afla gagna fyrir Gæðagreina s.s. með spurningalistum, viðtölum, hópsamtölum, athugunum, gátlistum osfv.  Unnt er að aðlaga Gæðagreina að sérstöðu hvers skóla.

Þátttökugjald:  Allt efnið er án gjalds og aðgengilegt á heimasíðu Gæðagreina. 

Lykilþættir Gæðagreina eru sjö.  Hver lykilþáttur inniheldur nokkra undirþætti: 

  • Námskrá: Uppbygging skólanámskrár, gæði áætlana í einstökum námsgreinum, gæði áætlana hjá kennurum.
  • Árangur: Árangur í námsgreinum, árangur í samræmdum prófum, heildarárangur.
  • Nám og kennsla: Gæði kennslunnar, gæði námsins, til móts við þarfir nemenda, mat sem liður í kennslu, samskipti við foreldra.
  • Stuðningur við nemendur: Umönnun, þroski og lífsleikni, gæði náms- og starfsráðgjafar, hlutverk ráðgjafar í árangri, stuðningur, reglugerð um sérkennslu, úrræði vegna sérkennslunemenda.
  • Starfsandi: Starfsandi, samstarf við foreldra og skólanefnd, tengsl við aðra skóla, skólaskrifstofur, atvinnurekendur og samfélagið.
  • Mannafli, aðstaða: Húsnæði og aðstaða, búnaður, skipulag og notkun á búnaði og húsrými, mannafli, nýting mannafla, starfsmat, rekstur skólans.
  • Stjórnun, forysta og trygging gæða: Sjálfsmat, þróunaráætlun skólans, framkvæmd þróunaráætlunar, skilvirkni skólastjórnenda sem leiðtoga, skilvirkni kennara í stjórnunarstöðum.

Sjá nánar á heimasíðu Gæðagreina:  http://skolar.skagafjordur.is/gaedagreinar/heim.html


Verkefni sveitarfélaga



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica