Fréttir - skólamál
Námsleyfi grunnskólakennara og skólastjórnenda 2011–2012
Stjórn Námsleyfasjóðs hefur opnað fyrir umsóknir um námsleyfi grunnskólakennara og stjórnenda grunnskóla skólaárið 2011–2012. Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi fyrir 1. október 2010 á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að við úthlutun verði sett í forgang nám sem tengist kennslu nemenda með sértækar námsþarfir. Skal allt að 1/3 námsleyfa úthlutað vegna þessa.
Sækja um námsleyfi

