Fréttir - skólamál
  • Formenn-og-born-litil

7.2.2012

Hátíðahöld víða um land í tilefni dags leikskólans

Dagur leikskólans var haldinn hátíðlegur víða um land í gær, 6. febrúar. Leikskólabörn og starfsmenn leikskólanna gerðu sér dagamun með ýmsum hætti, sem dæmi má nefna að börnin í leikskólanum Undralandi á Flúðum fóru í verslunina á staðnum, sungu og hengdu upp listaverk.

Í Kópavogi komu leikskólabörn frá leikskólanum Marbakka á bæjarskrifstofurnar og afhentu þar veggspjald þar sem fram koma upplýsingar um starf leikskólanna og ýmis gullkorn frá börnunum. Í Stykkishólmi buðu börnin á leikskólanum foreldrum sínum í morgunkaffi og á Hornafirði brugðu eldri krakkar af Lönguhólum og Krakkakoti sér í Nýheima þar sem þeir hittu meðal annars fulltrúa frá bænum. Að því loknu var ákveðið að bregða á leik með nemendum í Fjölbrautarskóla Austurlands  á flötinni fyrir utan Nýheima.

Styrkur FL látinn renna til Sjónarhóls

Þá afhenti Haraldur F. Gíslason, formaður Félags leikskólakennara, Halldóri Halldórssyni, formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga, ávísun að andvirði 363 þúsund krónur. Peningurinn er afrakstur styrktartónleika sem Félag leikskólakennara stóð fyrir í sumar í aðdraganda boðaðs verkfalls leikskólakennara og átti ágóðinn að renna til sveitarfélaga.  Við móttöku hennar tilkynnti Halldór að upphæðin yrði látin renna til Sjónarhóls, sem er ráðgjafarmiðstöð fyrir foreldra barna með sérþarfir. Að Sjónarhóli standa: ADHD samtökin, Landssamtökin Þroskahjálp, Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra og Umhyggja, félag til stuðnings langveikum börnum.   

Dagur-leikskolans-Fludir
Börnin í leikskólanum Undralandi á Flúðum fóru í búðarferð. Mynd: mbl.is

Dagur-leikskolans-Kopavogur

Krakkarnir á Marbakka komu í heimsókn á bæjarskrifsofurnar. Mynd: kopavogur.is

Dagur-leikskolans-Stykkisholmur

Börnin í Stykkishólmi buðu foreldrum sínum í morgunkaffi. Mynd: stykkisholmur.is

FAS_leikskoladagurinn

Á Hornafirði léku börnin sér með nemendum fjölbrautarskólans. Mynd: hornafjordur.is






Senda grein

Verkefni sveitarfélaga



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica