Fréttir - skólamál
  • Halldor_Halldorsson

6.2.2012

Til hamingju með daginn!

Dagur leikskólans er haldinn hátíðlegur í dag, 6. febrúar, í fimmta sinn frá því að til hans var stofnað árið 2008. Leikskólar um allt land halda upp á daginn með fjölbreyti­legum hætti að vanda og bjóða aðstandendur leikskólabarna, sveitarstjórnarfólk og aðra áhugasama um leikskólastarfið velkomna.

Leikskólinn er skilgreindur sem fyrsta skólastigið í skólakerfinu skv. lögum og er Ísland eina landið sem hefur veitt leikskólastiginu slíkan sess í skólakerfinu með jafn afgerandi hætti. Á undanförnum áratugum hefur staða  leikskólans sem þýðingarmikillar mennta- og uppeldisstofnunar í samfélaginu styrkst jafnt og þétt.  Lög og námskrár um leikskóla hafa verið skrifaðar til að tryggja leikskólabörnum sem best náms- og uppeldisskilyrði, menntun starfsfólks færð á háskólastig og faglegar kröfur til starfs leikskóla hafa aukist. 

Dvalartími barna á leikskóla er misjafnlega langur.  Skólaskýrsla Sambands íslenskra sveitarfélaga 2011 sýnir að undanfarin þrettán ár hefur dagleg viðvera barna á leikskóla lengst mjög mikið og stöðugt fleiri börn dvelja í 7-8 klukkustundir eða meira á leikskóla á degi hverjum. Þannig dvöldu 43% leikskólabarna í 7-8 klukkustundir eða lengur árið 1998 en 89% árið 2010.  Þá er aukning í ásókn í þjónustu leikskóla, en árið 1998 sóttu 69% barna á aldrinum 1-5 ára leikskóla en það hlutfall er komið upp í 82% árið 2010.  Aldurssamsetning leikskólabarna hefur breyst þannig að fleiri börn tveggja ára og yngri dvelja nú á leikskólum en áður.

Þessar tölulegu staðreyndir sýna svo ekki verður um villst að leikskólinn gegnir stöðugt stærra hlutverki í uppeldi og kennslu yngstu kynslóðarinnar.  Mikill meirihluti barna ver daglega meiri tíma með starfsfólki leikskóla en með foreldrum eða öðrum uppalendum.   Ábyrgð leikskólanna er því mikil og áríðandi að þar starfi gott og velmenntað starfsfólk því börnin eru framtíðin. Það er því afar gleðilegt að sjá hversu ánægðir foreldrar eru með starfsemi leikskólanna í landinu en mörg sveitarfélög framkvæma reglulega viðhorfskannanir meðal foreldra. 90-95% foreldra lýsa yfir ánægju sinni með þjónustu leikskólanna. Sveitarfélögin geta verið stolt af slíkum niðurstöðum. Alltaf má þó gera betur og mikilvægt er að sveitarfélögin og aðrir rekstraraðilar leikskóla hugi vel að umhverfi barnanna og öryggi þeirra í því vinnuumhverfi sem þeim er búið.  Á grundvelli laga um leikskóla frá 2008 hefur sambandið átt samstarf við mennta- og menningarmálaráðuneytið um útgáfu öryggishandbókar fyrir leik- og grunnskóla. Leitað var sérfræðiráðgjafar Herdísar Storgaard við þá vinnu sem nú er á lokastigi. Án efa er unnt að bæta ýmis atriði í öryggismálum leikskóla án mikils tilkostnaðar, þótt sveitarfélögin haldi mörg að sér höndum varðandi stærri og kostnaðarsamari framkvæmdir í ríkjandi árferði.

Samband íslenskra sveitarfélaga tekur nú þátt í stefnumótunarvinnu til að finna leiðir til þess að efla leikskólana, m.a. með því að auka áhuga á leikskólakennaranámi og jafna hlutfall karla og kvenna sem starfa á leikskólum. Það er áhyggjuefni að nýnemum í leikskólakennaranámi hefur fækkað um 40% frá árinu 2007 og er m.a. þörf á að kanna hvort lög sem samþykkt voru árið 2008 um lengingu kennaranáms hafi aukið á þetta vandamál. Í aðdraganda þeirra lagasetningar taldi sambandið ástæðu til þess að opna í ríkara mæli fyrir raunfærnimat við inntöku í leikskólakennaranámið og auka einnig möguleika ófaglærðs starfsfólks með langa og góða starfsreynslu til þess að sækja sér styttri, hagnýta menntun sem gæfi tiltekin starfsréttindi.

Full ástæða er samt til þess að vekja athygli framhaldsskólanema og atvinnuleitenda á því að leikskólakennaramenntun er afar hagnýtt nám sem veitir lögvarin starfsréttindi og atvinnumöguleikar eru mjög góðir að námi loknu. Sérstaklega vil ég hvetja unga karlmenn til þess að íhuga þennan valkost þegar þeir velja sér háskólanám. Reynslan sýnir að ungir menn sem koma til starfa í leikskóla meðfram námi í framhaldsskóla eru líklegir til þess að sækja sér leikskólakennaramenntun eftir jákvæða upplifun af leikskólastarfinu. Sveitarfélögin ættu því að kynna leikskólastarfið betur fyrir bæði piltum og stúlkum, hvetja leikskólastjóra til þess að ráða karlmenn til starfa og bjóða upp á kynningu í grunn- og framhaldsskólum, t.a.m. í tengslum við starfsfræðslu og starfskynningar í efstu bekkjum grunnskóla. Ég vil að lokum hvetja alla sem koma að málefnum leikskólans á einn eða annan hátt, til að halda Degi leikskólans á lofti. Látum dag leikskólans verða okkur hvatning til að kynna okkur það mikilvæga starf sem þar fer fram. 

Halldór Halldórsson
formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga

Senda grein

Verkefni sveitarfélaga



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica