Fréttir - skólamál
  • skolabragur

24.1.2012

Auglýst eftir umsóknum um styrki úr Sprotasjóði

Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Sprotasjóði leik-, grunn- og framhaldsskóla. Hlutverk sjóðsins er að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi.
 
Í 4 gr. reglugerðar nr. 242/2009 um Sprotasjóð leik-, grunn- og framhaldsskóla segir:
 

Leikskólastjórar, skólastjórar eða skólameistarar fyrir hönd skóla, kennarahópa eða einstakra kennara geta sent inn umsókn. Aðrir aðilar en skólar geta sótt um þróunarverkefni í samstarfi við skóla. Í þeim tilfellum skal staðfesting á þátttöku skóla fylgja umsókn.

 
Áherslusvið sjóðsins verða að þessu sinni:

  1. Þróun skólanámskrár með hliðsjón af nýrri menntastefnu
  2. Virkt lýðræði, mannréttindi og samskipti í skólum

 
Við mat á umsóknum verður skoðað hvernig verkefnin falla að hlutverki Sprotasjóðs ásamt því að markmið verkefnis séu skýrt fram sett, að verkefnisstjórn sé vel skilgreind,  að raunsæjar kostnaðar-, verk- og tímaáætlanir séu lagðar fram, og að framlag samstarfsaðila sé tryggt og vel skilgreint.
 
Umsóknir sem falla utan áherslusviða fá sérstaka umfjöllun í ljósi áhrifa verkefna á menntun.
 
Fyrir skólaárið 2012 – 2013 verða til úthlutunar allt að 45 milljónir kr.
 
Vakin er sérstök athygli á að umsóknir um styrki skulu vera á rafrænu formi. Sækja þarf um aðgang að umsóknavef Sprotasjóðs, www.sprotasjodur.is 
 ATH: Umsóknarvefurinn opnar 1. febrúar verður hægt að sækja um til 29. febrúar 2012.
 
Nánari upplýsingar um Sprotasjóð veitir Sigrún Vésteinsdóttir hjá Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri í síma 4608904 eða í tölvupósti á  sv@unak.is

Senda grein

Verkefni sveitarfélaga



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica