Skipulagsmálanefnd
Skipulagsmálanefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga hélt sinn fyrsta fund 25. mars 2010.
Í erindisbréfi nefndarinnar segir m.a.:
Hlutverk skipulagsmálanefndar er:
Að vera ráðgefandi fyrir stjórn og starfsmenn sambandsins í skipulagsmálum, svo sem varðandi fyrirhugaðar breytingar á lögum og reglum um skipulagsmál og mat á umhverfisáhrifum. Einnig fylgist nefndin með þróun umhverfislöggjafar sem tengist skipulagsgerð sveitarfélaga, meðal annars um flóðavarnir og stjórn vatnamála.
Á fyrsta fundi skipulagsmálanefndar var lögð áhersla á að efla upplýsingaflæði milli sambandsins og sveitarfélaga. Nefndin hvetur sveitarfélögin jafnframt til þess að skiptast á umsögnum um frumvörp og upplýsa sambandið um afstöðu sína til stefnumarkandi atriða.
Nefndina skipa:
- Elín R. Líndal, sveitarstjórnarmaður í Húnaþingi vestra og stjórnarmaður í sambandinu
- Drífa Hjartardóttir, oddviti Bláskógabyggðar
- Páll Guðjónsson, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
- Páll Hjaltason, varaborgarfulltrúi og formaður skipulagsráðs Reykjavíkur
- Pétur Bolli Jóhannesson, skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar
