Hafnasamband Íslands
Hafnasamband sveitarfélaga var stofnað árið 1969 að frumkvæði Sambands íslenskra sveitarfélaga, en þar sem hafnamál eru mjög sérhæfð var talið rétt að fara þá leið að stofna sérstakt samband hafna.
Hlutverk Hafnasambands sveitarfélaga er að koma fram gagnvart ríkisvaldinu og öðrum í málum er varða hafnirnar, að efla samstarf hafnanna og að vinna að öðru leyti að hvers konar sameiginlegum hagsmunamálum þeirra, svo sem samræmingu á reglugerðum og gjaldskrám og með því að miðla reynslu og upplýsingum. Að þessum verkefnum hefur Hafnasambandið unnið allt frá stofnun þess.
Hafnasamband sveitarfélaga hefur árlega látið framkvæma kannanir á fjármálum og fjárhagsstöðu hafnanna og hafa þær verið lagðar til grundvallar í viðræðum við ríkisvaldið um gjaldskrárbreytingar og fjármál hafnanna. Í Hafnarráði sem skipað er af samgönguráðherra eiga sæti tveir fulltrúar frá Hafnasambandi sveitarfélaga og þrír fulltrúar tilnefndir af samgönguráðherra.
Í lögum hafnasambandsins segir, að hvert sveitarfélag sem á höfn eða hafnasamlag geti gerst aðili að hafnasambandinu. Um fjórðungur íslenskra sveitarfélaga á og rekur hafnir og eru nú samtals 48 aðildarhafnir að sambandinu. Árlega er haldinn ársfundur Hafnasambands Íslands með fulltrúum allra aðildarhafna, þar sem kosin er stjórn og formaður hafnasambandsins til fjögurra ára í senn.
Hafnasamband Íslands hefur aðsetur á skrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Hafnasamband Íslands
Pósthólf 8100
128 Reykjavík
Sími: 515 4900
Formaður Hafnasambands Íslands er Gísli Gíslason, framkvæmdastjóri Faxaflóahafna ehf.
