Alþjóða skipulagsdagurinn
Alþjóða skipulagsdagurinn er í dag 8. nóvember. Markmiðið með deginum er að efla almenningsvitund um gildi og þýðingu skipulags og hvernig vönduð skipulagsvinna stuðlar að heilbrigðu og lifandi samfélagi. Skipulagsverðlaunin eru veitt á tveggja ára fresti og voru þau fyrst veitt árið 2006. Það er Skipulagsfræðingafélag Íslands sem veitir verðlaunin í samvinnu við Skipulagsstofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga (þ.e. við tilnefnum fulltrúa í dómnefnd)
Skipulagsverðlaun Skipulagsfræðingafélags Íslands árið 2010 verða veitt á Alþjóðlega skipulagsdeginum 8. nóvember í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Dagskrá verðlaunaafhendingar:
16.00-16.10: Móttaka.
16.10-16.20: Setning Skipulagsverðlauna 2008, Hjálmar Sveinsson.
16.20-16.30: Hjálmar Sveinsson, varaformaður skipulagsráðs Reykjavíkurborgar.
16.30-16.40: Tónlist. Guðmundur Freyr Hallgrímsson leikur á píanó.
16.40-17.00: Dr. Bjarki Jóhannesson, formaður SFFÍ gerir grein fyrir niðurstöðum dómnefndar og afhendir verðlaun.
17.00: Dagskrá lýkur.

