Skólaskýrsla
Hag- og upplýsingasvið sambandsins hefur á undanförnum árum tekið saman ýmsar tölulegar upplýsingar um skólamál og birt í sérstakri Skólaskýrslu sem gefin hefur verið út árlega. Í skýrslunni er fjallað um skólastigin þrjú sem eru á könnu sveitarfélaganna – leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla – og birtar tölulegar upplýsingar sem ná til þessara skólastiga á landsvísu.
Í skýslunni eru birtar ýmsar magntölur yfir skóla, nemendur, kennara og annað starfsfólk og kostnað vegna þessara rekstrarþátta í starfsemi sveitarfélaganna, ásamt margvíslegum upplýsingum öðrum um skólamál, svo sem lög og reglurgerðir o.fl.
