Kynningarfundur um Upplýsingaveitu sveitarfélaga
Kynningarfundur um verkefnið „Upplýsingaveita sveitarfélaga“ var haldinn í sal Endurmenntunar Háskóla Íslands að Dunhaga 12 Reykjavík fimmtudaginn 12. maí. Fundurinn var sérstaklega ætlaður þeim starfsmönnum sveitarfélaganna sem annast bókhaldsmál, fjármálastjórn og önnur tengd verkefni. Fundurinn var einnig sendur út í fjarfundarbúnaði.
Dagskrá fundarins:
| 13:00 | Inngangsorð |
| 13:05 | Hvað er Upplýsingaveita sveitarfélaga? Tæknileg útfærsla verkefnisins Valur Þórarinsson frá Maritech |
| 13:30 | Þarfir einstakra aðila Hagstofa Íslands, Jóhann R. Björgvinsson Samband íslenskra sveitarfélaga, Gunnlaugur Júlíusson sviðsstjóri Innanríkisráðuneytið, Jóhannes Finnur Halldórsson |
| 14:30 | Sýn sveitarfélaga á verkefnið Ingólfur Arnarson, fjármálastjóri Kópavogsbæjar |
| 15:00 | Almennar umræður og fyrirspurnir |
