Innflytjendamál
Fjölmenningarsetur
Fjölmenningarsetur hefur það hlutverk að greiða fyrir samskiptum fólks af ólíkum uppruna og efla þjónustu við útlendinga sem búsettir eru á Íslandi, eða vilja flytja hingað erlendis frá.
Á vef Fjölmenningarseturs, mcc.is og fjolmenningarsetur.is, er að finna upplýsingar um Ísland og íslenskt samfélag. Auk íslensku er búið að þýða hana yfir á ensku, pólsku, króatísku, tailensku, spænsku, rússnesku og litháísku. Á síðunni má finna upplýsingar um Ísland og íslenskt samfélag. Áhersla er lögð á að fólk sem flyst til landsins erlendis frá geti kynnt sér réttindi sín og skyldur og nálgast upplýsingar um hverdagslega hluti á auðveldan hátt. Á síðunni er sérstakt sveitarfélagaviðmót þar sem finna má upplýsingar um helstu opinbera þjónustu í hverju sveitarfélagi fyrir sig. Orðskýringar eru einnig á vefnum sem hafa nú verið þýddar á sjö tungumálum. Síðan getur nýst starfsfólki sveitarfélaga og stofnana til að aðstoða útlendinga því alltaf er hægt að sjá á íslensku hvað verið er að þýða í hverju tilviki.
Fjölmenningarsetur hefur það hlutverk að greiða fyrir samskiptum fólks af ólíkum uppruna og efla þjónustu við innflytjendur sem búsettir eru á Íslandi.
Hjá Fjölmenningarsetri er hægt að leita eftir upplýsingum um margt er varðar daglegt líf á Íslandi, stjórnsýsluna og leita eftir aðstoð varðandi flutning til og frá Íslandi.
Fjölmenningarsetur starfrækir upplýsingasíma á pólsku, serbnesku/króatísku, taílensku, spænsku, litháísku og rússnesku
Fjölmenningarsetur er staðsett að Árnagötu 2 á Ísafirði en þjónustar allt landið.
Fjölvaki
Fjölvaki er vefur þar sem efni tengt fjölmenningu er vaktað og birt á einum stað. Þar eru t.d.:
- Yfir 600 tenglar á 23 tungumálum sem allir vísa á íslenskar vefsíður í tenglasafninu.
- Yfir 200 hugtök á 9 tungumálum sem tengjast samskiptum heimila og skóla í orðasafninu.
- Yfir 150 færslur í ýmsum flokkum tengdar námsgögnum sem tengjast íslenskukennslu í námsefnisbankanum.
Stefnumótun í málefnum innflytjenda
Upplýsingar um stöðu innflytjendamála hjá sveitarfélögum skv. svörum þeirra við könnun starfshóps Sambands íslenskra sveitarfélaga um stefnumótun í málefnum innflytjenda vorið 2008:
Sveitarfélög sem hafa unnið að þróunarverkefnum í málefnum innflytjenda
| Sveitarfélag | Upplýsingar |
| Akureyri | astofan@akureyri.is, anna@ahus.is |
| Bolungarvík | unnar@bolungarvik.is |
| Garðabær | bergljot@gardabaer.is, Vilhjalmurha@gardabaer.is |
| Fjarðabyggð | sigridur.h.palsdottir@fjardabyggd.is Sveitarfélög á Austurlandi hafa samþykkt stefnu í móttöku nýrra íbúa. Stefna í málefnum nýrra íbúa á Austurlandi . |
| Grímsnes- og Grafningshreppur | hilmar@gogg.is |
| Hafnarfjarðarbær |
Í lok árs 2006 setti Hafnarfjarðarbær á laggirnar tímabundið tilraunaverkefnið Nýbúaútvarp. Markmið verkefnisins eru að að auka upplýsingaflæði og fræðslu til erlendra íbúa Hafnarfjarðar og tryggja betur aðlögun þeirra að íslensku samfélagi. Nýbúaútvarp útvarpar margvíslegu efni á nokkrum erlendum tungumálum. Útsendingarnar hófust í nóvember 2006 og nást á stórhöfuðborgarsvæðinu auk þess sem hægt er að hlusta á útvarpið í gegnum vefveitu Hafnarfjarðar. 60 mínútna langir þættir hafa verið á dagskrá 4 sinnum í viku auk endurvörpunar á sunnudögum. Fjölmiðladeild Flensborgarskólans í Hafnarfirði annast tæknihlið útsendinganna en Alþjóðahús ber ábyrgð á dagskrárgerð en dagskrárgerðin hefur verið í höndum sjálfboðaliða frá hinum ýmsu löndum. Verið er að skoða framhald þessa verkefnis nú. Hafnarfjarðarbær vinnur nú að rannsókn á þátttöku barna af erlendum uppruna í íþrótta- og æskulýðsstarfi í sveitarfélaginu. Rannsóknin á að varpa ljósi á stöðuna og leita leiða til úrbóta, ef þess er þörf. Niðurstöður liggja ekki fyrir. |
| Kópavogsbær | konnyh@kopavogur.is |
| Mosfellsbær | bth@mos.is |
| Reykjanesbær | katarxyn.kraciuk@reykjanesbaer.is |
| Reykjavíkurborg | |
| ÍTR | halldora.gunnarsdottir@reykjavik.is |
| Leikskolasvið | sigridur.indridadottir@reykjavik.is |
| Velferðarsvið | edda.olafsdottir@reykjavik.is |
| Seltjarnarnesbær | Þróunarverkefni í leikskólanum Mánabrekku - hrafnhildur@seltjarnarnes.is |
| Sveitarfélagið Vogar | siggara@vogar.is |
Móttökuferli
| Hafnarfjarðarbær |
Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti nýlega tillögu um að í þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar starfi þjónustufulltrúi sem sinnir sérstaklega málefnum innflytjenda og þjónustu við þá. Sérstakt mótttökuferli fyrir börn á grunnskólaaldri í Lækjarskóla. |
| Kópavogsbær | tomas@kopavogur.is |
| Reykjanesbær | katarzyn.kraciuk@reykjanesbaer.is |
| Sveitarfélagið Vogar | siggara@vogar.is |
Upplýsingaefni fyrir innflytjendur
| Hafnarfjarðarbær |
Í lok árs 2005 var gefinn út almennur upplýsingbæklingur fyrir innflytjendur í Hafnarfirði. Í honum er að finna grunnupplýsingar um þá þjónustu sem í boði er hjá bænum auk annarra hagnýtra upplýsinga. Bæklingurinn var þýddur á ensku, pólsku, rússnesku og víetnömsku. Nú þegar er búið að dreifa honum inn á heimili pólskra og rússneskra innflytjenda auk þess sem hann liggur frammi hjá ýmsum þjónustustofnunum. Að auki hefur kynningarrit um leikskóla Hafnarfjarðar og umsóknareyðublöð verið þýdd á nokkur tungumál. Jafnframt stendur til að þýða helstu upplýsingar á vef bæjarins http://www.hafnarfjordur.is/ yfir á nokkur tungumál. Stefnt er að því að þeirri vinnu ljúki á þessu ári. Sama á við um upplýsingar í íbúagáttinni, rafrænni þjónustugátt sem opnar á næstu vikum. Til stendur að kynningarefni vegna gáttarinnar verði á nokkrum tungumálum. |
| Kópavogsbær | Já, en fylgdi ekki |
| Reykjanesbær | Upplýsingaefni fylgdi ekki |
| Reykjavíkurborg | |
| ÍTR | Sjá hlekki á upplýsingaefni sem ÍTR hefur tekið saman um þjónustuna á öðrum tungumálum. Bæklingur um starfsemi ÍTR á ensku, spænsku og serbo-króatísku. http://www.rvk.is/Portaldata/1/Resources/skjol/svid/itr/skjol/utgefidefni/sports_and_leisure_activities.pdf Upplýsingar um frístundakort á ensku, spænsku og pólsku. http://www.rvk.is/desktopdefault.aspx/tabid-2470/ Ýmsar upplýsingar á ensku á vef ÍTR. http://www.rvk.is/desktopdefault.aspx/tabid-2563/ |
| Leikskólasvið | Efnið sem hefur verið tekið saman á vegum leikskólasviðs má finna á eftirfarandi vefslóð: http://www.rvk.is/desktopdefault.aspx/tabid-1492 |
| Vesturbyggð | Upplýsingaefni fyrir innflytjendur: Bæklingurinn "Your first steps in Iceland" útg. Af innflytjendaráði, liggur frammi í afgreiðslu sv.fél. á mörgum tungumálum |
