Hlutfall kvenna aldrei hærra á framboðslistum
Hlutfall kvenna í framboði til sveitarstjórna er hærra en nokkru sinni áður, eða 1.331 kona á móti 1.515 körlum. Konur eru því 46,8% frambjóðenda. Ef eingöngu eru skoðuð hlutföll kvenna og karla í efstu sætum framboðslista breytist myndin þó umtalsvert.
Hlutfall kvenna í fyrsta sæti framboðslista sem nú bjóða fram er 24,9% á móti 75,1% karla. Konur í öðru sæti framboðslista eru hins vegar 62,2% en karlar 37,8%. Ef skoðað er hlutfall kvenna og karla í fjórum efstu sætum allra framboðslista kemur í ljós að karlar skipa 55% þessara sæta en hlutfall kvenna er 45%.
Eins og sjá má á eftirfarandi yfirliti hefur hlutfall kvenna í sveitarstjórnum farið stighækkandi frá því í kosningunum 1982 en þá voru aðeins 12,4% prósent einstaklinga á framboðslistum konur.
| Kosningar | Fjöldi kvenna | Hlutfall af heild | Fjöldi svf. þar sem er engin kona í sveitarstjórn |
| 2006 | 189 | 35,70% | 5 |
| 2002 | 205 | 31,20% | 9 |
| 1998 | 213 | 28,20% | 15 |
| 1994 | 243 | 24,80% | 23 |
| 1990 | 243 | 21,80% | 58 |
| 1986 | 225 | 19,20% | 81 |
| 1982 | 148 | 12,40% | 113 |
Eftir kosningarnar 2006 voru konur í meirihluta í ellefu sveitarstjórnum en árið 2002 voru konur í meirihluta í tíu sveitarstjórnum. Í þeim fjórum sveitarfélögum sem er sjálfkjörið í við þessar kosningar eru konur í meirihluta í einu sveitarfélagi, sem er Tálknafjarðarhreppur.
Óbundin kosning fer nú fram í 18 sveitarfélögum, sem þýðir að þar eru allir kosningabærir íbúar í kjöri.

