Hádegisverðarfundur um aukna þátttöku íbúa í stjórnun sveitarfélaga
Hádegisverðarfundur um aukna þátttöku íbúa í stjórnun sveitarfélaga verður haldinn í Iðnó í Reykjavík þriðjudaginn 12. mars næstkomandi. Að fundinum standa auk innanríkisráðuneytisins Samband íslenskra sveitarfélaga og samtökin Initiative and Referendum Institute Europe.
Aðalerindið flytur Bruno Kaufmann, sveitarstjórnarmaður í Falun í Svíþjóð og formaður evrópskra samtaka um beint lýðræði. Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga fjallar um efnið: Ríki og sveitarfélög, samstarf á jafnréttisgrundvelli? Lokaerindið flytur Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra og er yfirskrift þess: Búið í haginn fyrir lýðræðið. Að loknum erindunum er gefinn kostur á fyrirspurnum og umræðum.
FundurinBruno Kaufmann, formaður samtakanna Initiative and Referendum Institute Europe og formaður lýðræðisráðs og kjörstjórnar í Falun, Svíþjóðn hefst klukkan 12 og stendur til 13.30. Boðið verður uppá súpu og brauð. Þeir sem hyggjast sækja fundinn eru beðnir að skrá sig á netfangið skraning@irr.is fyrir miðnætti mánudagskvöldið 11. mars.
Dagskrá fundarins:
| 12:00 |
Dagskrá kynnt. |
| 12:05 | Democracy City - towards a local supportive infrastructure for participative democracy. Bruno Kaufmann, formaður samtakanna Initiative and Referendum Institute Europe og formaður lýðræðisráðs og kjörstjórnar í Falun, Svíþjóð. |
| 12:25 | Ríki og sveitarfélög. Samstarf á jafnréttisgrundvelli? Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. |
| 12:35 | Búið í haginn fyrir fyrir lýðræðið. Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra. |
| 12:45 | Fyrirspurnir og almennar umræður. |
| 13:30 | Fundi slitið. |

