Mótun nýrrar stefnu um upplýsingasamfélagsins 2013-2017
Nú stendur yfir vinna við mótun nýrrar stefnu um upplýsingasamfélagið sem taka mun gildi 2013. Í stefnumótunarferlinu verður dreginn lærdómur af og byggt á framangreindum átaksverkefnum og þeim ábendingum sem fram komu í mati á framkvæmd stefnunnar 2008-2012.
Innanríkisráðuneytið hefur stofnað síðu á vef sínum þar sem m.a. má finna:
- upplýsingar um stefnumótunarferlið
- fundargerðir frá kjarnahópi sem saman stendur af fulltrúum allra ráðuneyta
- upplýsingar frá stofnfundi sem haldinn var með 70 sérfræðingu 2. nóvember 2012 og
- Ýmis grunngögn er varða nýja stefnu
Markmið sem nú þegar hafa verið lögð til grundvallar nýrri stefnu
Í áætlun ríkisstjórnarinnar, Ísland 2020, eru sett fram tvö markmið sem snerta upplýsingasamfélagið og eiga erindi í nýja stefnu um upplýsingasamfélagið:
- Að Ísland verði meðal 10 efstu þjóða árið 2020 í rafrænni stjórnsýsluvísitölu Sameinuðu þjóðanna. Ísland var í 22. sæti árið 2010. Vísitalan er samsett úr 3 undirþáttum: Þjónustu á Netinu, fjarskiptainnviði og mannauð (human capital).
- Að Ísland verði meðal 10 efstu þjóða árið 2020 í rafrænni þátttökuvísitölu Sameinuðu þjóðanna. Ísland var í 135. sæti árið 2010. Í þessari vísitölu eru mæld gagnkvæm (tvíhliða) samskipti opinberra aðila við almenning og hagsmunaaðila á Netinu. Dæmi: Notkun samfélagsmiðla, viðhorfskannanir, kosningar, möguleikar til að tjá sig um málefni áður en ákvörðin er tekin í stefnumótunarferli, lagagerð o.fl.
Vefur Innanríkisráðuneytisins.

