Endurskoðun sveitarstjórnarlaga

Endurskoðun á sveitarstjórnarlögum, nr. 45/1998, stendur nú yfir á vegum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins. Trausti Fannar Valsson, lektor við lagadeild Háskóla Íslands, er verkefnisstjóri starfshóps sem ráðherra hefur skipað til verksins.

Meginmarkmið vinnunnar er að lögin skapi fullnægjandi umgjörð og stuðning við kjörna fulltrúa og stjórnsýslu sveitarfélaga, tryggi íbúum tækifæri til að taka þátt í ákvörðunum og tryggi ábyrga og rétta framkvæmd sveitarstjórnarmála. Þá er einnig lögð áhersla á að endurskoðun lagaákvæða sem snerta fjármál sveitarfélaga, eftirlit og upplýsingar með fjármálum þeirra en allir kaflar laganna verða teknir til skoðunar og endurmats.

Verkefið tengist einnig áformum ríkisstjórnarinnar um eflingu sveitarstjórnarstigins eins og kveðið er á um í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar.

Áhugasamir eru hvattir til að senda starfshópnum greinar sínar, ábendingar og annað efni sem þeir telja eiga erindi við hann og tengst getur starfi við endurskoðun sveitarstjórnarlaganna.

Tölvupóstfang: postur@sam.stjr.is

Aðsetur:

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið,
Hafnarhúsinu
Tryggvagötu
150 Reykjavík



Senda grein

Verkefni sveitarfélaga



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica