9 ÞÁTTUR - 6 þrep - 78 stig
Í starfinu felast AFAR MIKIL bein áhrif á velferð fjölda fólks sem er háð umönnun og styrkjum á vegum opinberra aðila. Starfsmaður er ábyrgur fyrir að greina og meta þarfir notenda opinberrar þjónustu og taka stefnumótandi ákvarðanir um það hvernig slík umönnunar og velferðaþjónusta sé veitt. Starfsmaður er í starfi sínu ábyrgur fyrir ákvarðanatöku sem hefur áhrif á framtíðarvelferð einstaka skjólstæðinga og hóps skjólstæðinga.
