Verkefni sveitarfélaga

8 ÞÁTTUR - 5 þrep - 50 stig

Starfsmaður sinnir persónulegri þjónustu við einstaklinga með krefjandi þarfir og þarf að taka ákvarðanir (oft erfiðar) um þau velferðarúrræði sem valin eru. Starfið felur í sér samband við einstaklinga eða hópa sem vegna mjög erfiðra aðstæðna sinna eða hegðunar valda starfsmanni reglulega MJÖG MIKLU tilfinningalegu álagi.

Starfsmaður er aðili að málum sem geta valdið tilfinningalegu álagi. Starfsmaður ber ábyrgð á ákvarðanatöku í málum sem geta haft veruleg áhrif á aðstæður skjólstæðinga og velferð þeirra.

Hér er gert ráð fyrir að tilfinningalegt álag sé reglulegur og fyrirsjáanlegur hluti starfsins. Þetta getur átt við þegar starfsmaður vinnur náið með einstaklingum /skjólstæðingum sem vegna langvarandi veikinda, fötlunar eða erfiðra heimilisaðstæðna valda starfsmanninum reglulega tilfinningalegu álagi.

Senda grein



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica