7. Þáttur: Hugrænar kröfur
Í þessum þætti er verið að kanna kröfur um einbeitingu og aðgæslu í starfi og þá hve mikið, hve oft og / eða hve lengi í einu krafist er einbeitingar eða mikillar aðgæslu.
Metnir eru þættir sem gætu gert einbeitingu við störf erfiðari, t.d. einhæf vinna, truflun við vinnuna eða þegar skipta þarf á milli verkefna eða starfa. Einnig er skoðað það álag sem tengist starfinu og skapast af ólíkum kröfum til starfsmanns. Tekið er tillit til þess ef krafist er sérstaks viðbragðsflýtis í starfi. Í þessum þætti er gerð aðgreining á einbeitingu og aðgæslu.
EINBEITING:
Með einbeitingu er átt við einbeitingu hugans, rökhugsun, reikning o.s.frv. þ.e. þegar starfsmaður þarf að einbeita sér að vinnu á ákveðnum hlut, t.d. vegna textagerðar eða vinnu með tölur.
Almenn einbeiting er t.d. sú einbeiting sem starfsmenn þurfa að hafa, t.d. við að lesa vinnuleiðbeiningar, gera vinnuskýrslur o.s.frv.
Aukin einbeiting á sér til dæmis stað þegar farið er yfir skjöl til að ganga úr skugga um að vinnu við þau sé lokið eða að þau séu rétt, leiðrétting á pappírum og þegar yfirfara þarf einfalda útreikninga o.s.frv.
DÆMI: Vörureikningar, reikningsyfirlit, viðskiptakröfur, launareikningar, greining o.s.frv. Þessi verkefni eru það flókin að það getur tekið starfsmann nokkurn tíma / mínútur að setja sig aftur inn í verkefnið verði hann fyrir truflun.
Mikil einbeiting er t.d. sú einbeiting þar sem krafist er einbeitingar / rökhugsunar t.d. vegna flókinna útreikninga eða annarra sambærilegra flókinna verkefna er tengjast tölum og / eða textagerð.
DÆMI: Búa til formlegar skýrslur / skjöl, undirbúa formlegar kynningar, yfirfara, útskýra eða greina flóknar upplýsingar, t.d. með myndrænum hætti (teikningar af tæknilegum toga, súlurit, flæðirit o.s.frv.).Þessi verkefni eru það umfangsmikil og flókin að það tekur starfsmann þó nokkurn tíma að setja sig aftur inn í verkefnið verði hann fyrir truflun.
AÐGÆSLA
Með aðgæslu er átt við aðgæslu sem tengist skynjun, s.s. sjónskynjun, heyrn, snertiskyn, lyktarskyn o.s.frv. Starfsmenn sem vinna t.d. við eftirlit með börnum, akstur eða með og í kringum hættulegar vélar þurfa að sýna mikla aðgæslu og hafa „öll skilningarvit opin” meðan á vinnu stendur.
Almenn aðgæsla er sú aðgæsla sem krafist er af starfsmönnum í daglegum störfum.
Mikil aðgæsla felur í sér að sýna þarf sérstaka aðgæslu í starfi eða vera sérstaklega athugull.
DÆMI: Aðgæsla gagnvart umferð eða aðgæsla við eftirlit með börnum að leik. Sérhæfð tölvuvinnsla sem krefst sérstakrar aðgæslu eða vinna við gagnainnslátt sem krefst sérstakrar aðgæslu þar sem mistök geta haft slæmar afleiðingar o.s.frv.
