6. Þáttur: Líkamlegt álag
Í þessum þætti er lagt mat á líkamlegt erfiði í starfi. Hér er verið að skoða líkamlegt álag í verkefnum starfsins og þá hversu oft og mikið reynir á slíkt.
Tekið er tillit til mismunandi tegunda líkamlegs erfiðis, til dæmis er metið hversu mikið og hversu oft starfsmaður þarf að standa og ganga; lyfta og bera; toga og ýta.
Einnig er skoðað hvort starfsmaður þurfi að vinna í óþægilegri líkamsstellingu, til dæmis þar sem nauðsynlegt er að beygja sig, krjúpa, teygja sig eða vinna í þvingaðri stöðu.
