5. Þáttur: Frumkvæði og sjálfstæði
Í þessum þætti er metið hversu miklar kröfur eru gerðar um frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
Skoðað er að hversu miklu leyti sjálfstæði í starfi takmarkast af verklags- eða vinnureglum, fyrirmælum, fordæmi og stefnu deildar, sviðs eða stofnunar.
Einnig er metið hvaða kröfur eru gerðar er varða lausn óvæntra eða ófyrirsjáanlegra vandamála sem upp geta komið í starfi og hvort gerðar séu kröfur um að starfsmaður taki sjálfstæða ákvörðun um lausn óvæntar vandamála eða hvort honum beri að leita til næsta yfirmanns.
