4. Þáttur: Líkamleg færni

Í þessum þætti er metið hvort verkefni starfsins krefjist einhverrar sérstakrar líkamlegrar færni, þ.e. færni umfram það sem venjulegt er.

Með líkamlegri færni er átt við t.d. handlagni, fingrafimi, samhæfingu augna og handa og samhæfingu skynfæra.

Einnig er til skoðunar hvort starfsmaður þurfi t.d. að stjórna bifreið eða öðrum farartækjum, nota lyklaborð eða önnur tæki og verkfæri og hversu mikla færni m.t.t. nákvæmni og hraða þarf til þessara verka.

Mikilvægt er að hafa í huga hversu þýðingarmikil þessi krafa er í starfi. Í því sambandi getur verið nauðsynlegt að fram komi hvort starfsmaður þurfi að jafnaði á þessari færni að halda, hvort um sé að ræða nákvæmnisverk sem þarf að inna að hendi daglega eða hvort um sé að ræða tilfallandi verkefni sem starfsmaður þarf sjaldan að vinna. Einnig getur krafan um þjálfun eða hæfni á þessu sviði verið vísbending um það hversu mikil krafa um líkamlega færni er gerð í starfinu. Þar sem krafist er iðnmenntunar í trésmíði er væntanlega einnig krafist líkamlegrar færni við smíðarnar.

Þegar metin er nákvæmni og hraði er mikilvægt að hafa í huga að verið er að meta hvort og þá hversu mikið starfsmaður þarf að vinna nákvæmisverkin hratt, EKKI hvort starfsmenn þurfi almennt að flýta sér með verkefni. Ágætt er að hafa til viðmiðunar að mjög nákvæm verk er erfiðara að vinna hratt.

 

Senda grein

Verkefni sveitarfélaga




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica