3 ÞÁTTUR - 6 þrep - 78 stig
Starfið krefst þess að starfsmaður sinni:
- Afar flókinni umönnun eða þjálfun þar sem uppfylla þarf flóknar og krefjandi þarfir. Að uppfylla þessar þarfir getur krafist margs konar undirbúnings, eða:
- Sérhæfðri handleiðslu, formlegri samningagerð, eða málafærslu þar sem þess er krafist að starfsmaður geti sannfært aðra um að framfylgja ákveðinni stefnu eða grípa til tiltekinna aðgerða sem þeir kynnu annars ekki að vilja grípa til, eða:
- Miðlun fjölbreyttra, flókinna og umdeilanlegra upplýsinga til ýmissa hópa að meðtöldum sérfræðingum, hvort heldur sem er munnlega eða skriflega.
Flókin eða erfið samskipti tagi þarf að vera einn af meginþáttum starfsins og til þess að ná þeirri færni sem hér er krafist þarf starfsmaður að hafa að baki nám á þessu sviði samskipta, t.d. sálfræði-, uppeldis- eða ráðgjafamenntun ásamt mikilli starfsreynslu.
