2 ÞÁTTUR - 6 þrep - 78 stig
Starfið krefst færni í að greina, skapa og þróa lausnir og túlka mjög fjölbreyttar og sérlega flóknar sérfræðilegar upplýsingar eða aðstæður. Starfsmaður þarf einnig að vera fær um að vinna að eða móta áætlanir til framtíðar (meira en ár). Starfsmaður þarf að geta notað þekkingu sína og reynslu til þess að leggja mat sitt á og greina aðstæður eða vandamál í starfi og finna, þróa og ákvarða nýjar leiðir, viðmið eða aðferðafræði til þess að leysa út viðfangsefnum eða vandamálum.
