2. Þáttur: Hugræn færni

Í þessum þætti er metið hvaða kröfur starfið gerir til hugrænnar færni. Hér er átt við kröfu um færni til að þróa, greina og leysa vandamál og leggja mat á viðfangsefni hverju sinni. Einnig er metið hvort starfsmaður vinnur við skipulags- eða áætlunargerð eða að greiningarvinnu og hvort sú vinna tengist hönnun, samskiptum við fólk eða stefnumótun.

Hér er einungis verið að meta þá hugrænu færni, eða þá sköpunar- eða skipulagshæfileika sem starfið krefst, burtséð frá kröfum um frumkvæði og sjálfstæði sem er metið í 5 þætti. 

Sem dæmi þá þarf forritari t.d. að búa yfir mikilli hugrænni færni til þess að hanna forrit sem henta þarf ákveðnum verkefnum, en ekki er víst að hann hafi nokkuð komið nálægt ákvörðuninni um að hanna þyrfti kerfið.

 

Senda grein

Verkefni sveitarfélaga




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica