13. Þáttur: Vinnuaðstæður

Í þessum þætti eru metnar vinnuaðstæður sem geta talist óþægilegar, ónotalegar, ógeðfelldar eða hættulegar ýmist vegna umhverfis eða vinnu með fólki.

Dæmi: Ryk, óhreinindi, óeðlilega hár eða lágur hiti eða hitasveiflur, raki, hávaði, hristingur / titringur eða gufur. Einnig hugsanlegur óþefur / óhollusta af völdum manna- eða dýrasaur, reykur, fita eða olía, veður, umgangur, ónæði eða einangrun.

Hér er einnig metin hætta á veikindum eða meiðslum vegna nálægðar eða snertingar við eiturefni, sjúkdóma, vélar eða aðra umhverfisþætti. Einnig ef hætta er á einhverskonar ofbeldi, ágengni, t.d. ofbeldi þar sem hætta er á að starfsmaður hljóti áverka af völdum annars fólks eða skjólstæðingum.

Tekið er tillit til þess hversu oft starfsmaður þar að vinna við slíkar aðstæður, hversu lengi og hvert sé eðli óþægindanna.

Metnir eru þeir þættir í starfsumhverfi sem eru óhjákvæmilegir og órjúfanlegur hluti starfsins.

Ávallt er gert ráð fyrir að farið sé að heilbrigðis- og öryggiskröfum og reglugerðum.

 

Senda grein

Verkefni sveitarfélaga




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica