12. Þáttur: Ábyrgð á hugbúnaði, upplýsingarkerfum, gögnum, tækjum, og verkfærum, vannvirkjum, byggingum og landssvæðum.
Í þessum þætti er metin BEIN ábyrgð sem starfsmaður ber á búnaði, s.s. hugbúnaði, upplýsingakerfum, gögnum eða skjölum, verkfærum, tækjum og vélum, vörubirgðum, byggingum, landareignum og öðrum svæðum og / eða persónulegum eigum annarra.
Metið er hvers eðlis ábyrgð starfsmanns er; með tilliti til varðveislu, trúnaðar og öryggis, eðlis og umfangs vegna viðhalds og viðgerða, pantana, innkaupa og endurnýjunar, skipulagningar, umsýslu, stefnumótunar o.fl.
Tekið er tillit til þess hvernig ábyrgð deilist milli starfsmanna. Einnig er metið hversu oft og mikið reynir á þessa ábyrgð og hversu verðmæt viðkomandi aðföng eru.
Einnig skal meta ábyrgð starfsmanns í ráðgjöf og / eða stefnumótun í málaflokknum.
