11 ÞÁTTUR - 6 þrep - 78 stig
Starfið felur í sér mjög yfirgripsmikla beina ábyrgð á fjármunum, þ.e. umráð yfir gríðarlega miklum fjármunum af samþykktri fjárhagsáætlun eða sambærilegum tekjum. Ábyrgðin felur í sér þátttöku í gerð og eftirliti með viðeigandi fjárhagsáætlun(um) og langtíma fjárhagsáætlanagerð. Starfsmaður ber ábyrgð á breytingum á eðli, magni og samsetningu kostnaðar í áætlununum til að uppfylla kröfur um þjónustu eða aðrar kröfur.
