11. Þáttur: Ábyrgð á fjármunum
Í þessum þætti er metin ábyrgð starfsmanns á fjármunum og hvert sé umfang þeirrar fjárhagslegu ábyrgðar. Hér er verið að kanna beina ábyrgð á fjármunum, s.s. reiðufé, beiðnum, ávísunum, reikningsfærslum, rafrænum bankafærslum, reikningum, fjárhagsáætlunum, tekjum og gjöldum.
Tekið er tillit til hvers eðlis ábyrgðin er, til dæmis er metið hversu mikillar nákvæmni er krafist; varðveislu, trúnaðar og öryggis. Einnig er metið hversu mikla beina ábyrgð starfsmaður ber á fjárhags- og viðskiptaáætlanagerð, áætlunargerð og ráðgjöf og / eða stefnumótun. Hvort hann ber ábyrgðina einn eða með öðrum og hversu oft reynir á þessa ábyrgð og hversu mikið fé er um að ræða.
