10. Þáttur: Ábyrgð á verkstjórn, mannauðsstjórnun, leiðsögn, samræmingu á vinnu annarra

Í þessum þætti er metin ábyrgð starfsmanns á mannauðsstjórnun, verkstjórnun, vinnuskipulagi og skiptingu verkefna, auk ábyrgðar hans á eftirliti, þjálfun, leiðsögn, þróun og mati á störfum annarra.

Metin er sú ábyrgð sem starfsmaður ber á vinnu annarra, þ.e. þeirra sem hann hefur formlega umsjón með og ber ábyrgð á, s.s. að ráða starfsmenn, veita hvatningu og móta starfsmannastefnu.

Í þessum þætti er lögð áhersla á það í hverju ábyrgðin er fólgin fremur en að skoða nákvæman fjölda þeirra sem starfsmaður ber ábyrgð á eða stjórnar með beinum eða óbeinum hætti. Einnig er til skoðunar hvort starfsmaður ber ábyrgðina einn eða deilir henni með öðrum.

Þá skal meta ábyrgð starfsmanns í ráðgjöf, stefnumótun og / eða rannsóknum í málaflokknum.

 

Senda grein

Verkefni sveitarfélaga




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica