1. Þáttur: Þekking og reynsla
Í þessum þætti er metið hvers konar og hversu mikillar þekkingar og reynslu er krafist í starfi. Með þekkingu er átt við alla þá þekkingu sem starf gerir kröfur um til starfsmanns og getur þekkingin falist í starfs- eða stjórnunarreynslu, námskeiðum, styttri námsbrautum eða formlegu námi. Auk þess er metið hvort starfið krefst þess að starfsmaður hafi þekkingu á vinnureglum og starfsstað, vinnuferlum og vinnulagi, stefnu stofnunar og / eða annarra stofnana á sérfræðisviðinu.
Metin er krafa um þekkingu á hugtökum, hugmyndafræði, tungumálum, kenningum og tækni auk þekkingar á búnaði og vélum. Einnig er skoðað hvort krafist er nákvæmrar, víðtækrar eða fjölbreyttar þekkingar og hvort starfsmaður þurfi að nýta þá þekkingu á breiðum starfsvettvangi.
Metin er öll þekking og færni sem krafist er, án tillits til þess hvort hennar er krafist í öllum verkefnum starfsins eða aðeins hluta þeirra. Sem dæmi má nefna að sú þekking á fyrstu hjálp sem krafist er af sundlaugarvörðum er metin burtséð frá því hversu oft þeir þurfi síðan að nota þá þekkingu í starfi.
Til að auðvelda matsferlið og koma í veg fyrir að einstökum starfshlutum sé sleppt eða þeir vanmetnir hefur efni þessa þáttar verið skipt niður í marga aðskilda þætti. Ekki er tekið tillit til þess þó gerðar séu kröfur um líkamlega eða hugræna færni né samskipta eða tjáskiptafærni, enda fellur það undir aðra þætti. Kröfur um þekkingu og reynslu eru aðeins metnar í einum þessara þátta, en aðgreinda færnisþætti má meta samkvæmt eftirfarandi:
Tungumálaþekking og -kunnátta: Tungumálakunnátta sem krafist er vegna samskipta (munnlegra eða skriflegra) í starfi er metin út frá samskipta- og tjáskiptafærni, en þar sem ítarlegrar þekkingar á málfræði og setningafræði annars tungumáls en íslensku er krafist, til dæmis vegna þýðinga eða skrifa, eru kröfurnar metnar út frá þekkingarþættinum.
Þekking á tölvuvinnslu/ritvinnslu: Þekking á hugbúnaði, tölvu- eða ritvinnslu er metin út frá þekkingu, en færni í fingrasetningu og samhæfni sem þarf að uppfylla vegna krafna um nákvæmni og hraða í starfi er hins vegar metin í þættinum Líkamlegri færni.
Akstursfærni: Kunnátta í akstri eða stjórnun tiltekinna farartækja eða véla skal meta út frá þekkingarþættinum, en samhæfni og næmni sem þarf að uppfylla vegna krafna um nákvæmni og öryggi er metið í þættinum Líkamlegar kröfur.
Mikilvægt er að skoða kröfur um þekkingu í starfi með tilliti til þess hvaða forkröfur eru gerðar ef ráðið yrði í starfið í dag.
