Launanefnd lögð niður
Breytt fyrirkomulag á þjónustu Sambands íslenskra sveitarfélaga við sveitarfélögin á sviði kjaramála
Samkvæmt ákvörðun XXIV landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga, þann 1. október 2010, var umboð Launanefndar sveitarfélaga til kjarasamningagerðar fært til stjórnar sambandsins og launanefndin lögð niður. Jafnframt var kjarasviði sambandsins falið að hafa yfirumsjón með kjarasamningagerð og framkvæmd kjarasamninga gagnvart viðsemjendum sveitarfélaganna.
Hlutverk Launanefndar sveitarfélaga var:
Launanefnd sveitarfélaga var stofnuð árið 1982 fyrir forgöngu Sambands íslenskra sveitarfélaga. Helstu rökin fyrir stofnun launanefndar voru þau að afar brýnt væri að sveitarfélögin sýndu samstöðu og stæðu saman gagnvart viðsemjendum sínum. Fyrir stofnun nefndarinnar samdi hver sveitarstjórn fyrir sig við þau stéttarfélög sem við átti. Á þeim árum sem liðin eru frá stofnun launanefndar hefur þeim félögum fjölgað mikið sem sveitarfélögin þurfa að semja við. Sérfræðiþekking á vegum allra þeirra aðila sem koma að kjarasamningagerð er nú orðin forsenda þess að viðunandi árangur náist.
Vinnuveitendahlutverk sveitarfélaga og hlutverk og staða Launanefndar sveitarfélaga.
Starfsemi launanefndar
- að vinna að endurskoðun á hlutverki og stöðu Launanefndar sveitarfélaga og starfsháttum við kjarasamningsgerð.
Vinnuveitendahlutverk sveitarfélaganna
- að eflast í vinnuveitendahlutverki sínu og vinna að því að gera sveitarfélögin meðvitaðri um hlutverk þeirra á því sviði.
Gerð kjarasamninga
- að vinna að því að ná fram aukinni hagkvæmni og skilvirkni við undirbúning og gerð kjarasamninga.
- að stuðla að samræmingu kjarasamninga.
- að stuðla að fækkun samningsaðila.
- að vinna að því að kjararannsóknir verði efldar svo tryggja megi öryggi í kjarasamningsgerð og að unnt sé að fylgjast betur með launaþróun starfsmanna sveitarfélaga.
Samstarf við aðra vinnuveitendur
- að vinna að auknu samstarfi sveitarfélaga og annarra vinnuveitenda.
Jafnréttismál
- að halda áfram að þróa starfsmatskerfi til að tryggja að starfsmenn fái sömu laun fyrir jafnverðmæt og sambærileg störf.
Símenntun
- að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum hvað varðar símenntun og starfsþróunarmál starfsmanna sveitarfélaga.
Gildandi markmið og stefna LN frá 2000
Markmið
- að þjóna sveitarfélögum á sviði vinnumarkaðsmála á faglegan og fjölbreyttan hátt.
- að hafa frumkvæði að rannsóknum og upplýsingagjöf til sveitarfélaga um kjaramál og leysa eins og kostur er úr þeim viðfangsefnum sem þau fela nefndinni að sinna.
- að efla samráð LN við einstök sveitarfélög.
- að vera í góðu samráði við aðra vinnuveitendur.
- að launastefna LN laði til sveitarfélaga og fyrirtækja þeirra hæfa starfsmenn og stjórnendur.
Stefna
- LN vill ná fram þeim markmiðum sem sveitarfélögin setja sér í starfsmannamálum og þjónustu miðað við fjárhagslega getu þeirra.
- að laun ákvarðist kerfisbundið eftir innihaldi og ábyrgð í sérhverju starfi.
- að laun taki mið af hæfni og árangri starfsmanna og við hagræðingu verði ábataskipti höfð að leiðarljósi.
- að launaákvarðanir byggi á almennri jafnræðisreglu.
- að samræma almenna grunnþætti kjarasamninga.
- að gera kjarasamninga vegna grunnskólans í samræmi við samninga annarra háskólamanna.
