Kjaramálanefnd

Breytt fyrirkomulag á þjónustu Sambands íslenskra sveitarfélaga við sveitarfélögin á sviði kjaramála

Samkvæmt ákvörðun XXIV landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga, þann 1. október 2010,  var umboð Launanefndar sveitarfélaga til kjarasamningagerðar fært til stjórnar sambandsins og launanefndin lögð niður. Jafnframt var kjarasviði sambandsins falið að hafa yfirumsjón með kjarasamningagerð og framkvæmd kjarasamninga gagnvart viðsemjendum sveitarfélaganna.

Stjórn sambandsins skipar fimm manna kjaramálanefnd, sem er stjórn og kjarasviði til ráðgjafar  í vinnumarkaðsmálum, kjarasamningagerð og við undirbúning kjarastefnu og samningsmarkmiða Sambands íslenskra sveitarfélaga. Kjaramálanefndin er skipuð tveim stjórnarmönnum og þrem sérfræðingum sveitarfélaganna í kjara- og starfsmannamálum. Auk þess sitja sérfræðingar kjarasviðs fundi nefndarinnar. Sviðsstjóri kjarasviðs stjórnar fundum nefndarinnar.

Stjórn sambandsins setur markmið og mótar stefnu sambandsins í kjaramálum og sviðsstjóri kjarasviðs og framkvæmdastjóri sambandsins bera ábyrgð á að markmiðum og stefnu sambandsins í kjarasamningagerð sé fylgt.



Senda grein

Verkefni sveitarfélaga



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica