Fréttir - kjara- og starfsmannamál
  • SIS_Kjara_starfsmannamal_760x640

7.2.2012

Áframhaldandi viðræður við FG um vinnutíma

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkti á fundi sínum þann 27. janúar sl. að fela samninganefnd sambandsins að gera nýja viðræðuáætlun við Kennarasamband íslands vegna Félags grunnskólakennara, sem miði að því að viðræðum ljúki með undirskrift nýs kjarasamnings aðila eigi síðar en 1. desember 2012.

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkti einnig að sveitarfélögin greiði félagsmönnum Félags grunnskólakennara kjarasamningsbundnar hækkanir ársins 2012, þrátt fyrir að samningur aðila frá því í maí 2011 renni út þann 29. febrúar nk.
Þessi samþykkt er gerð í þeim tilgangi að skapa samninganefndum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara, svigrúm til að ljúka umsömdum verkefnum samkvæmt bókun 2 [2011] og tryggja þar með, eins og kostur er, að viðræðurnar fari fram undir friðarskyldu á árinu 2012.

Félag grunnskólakennara hefur jafnframt lýst því yfir að á meðan viðræðuáætlun aðila er í gangi virði félagið að fullu friðarskyldu kjarasamninga.

Með kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands v. Félags grunnskólakennara(FG), undirrituðum 14. maí 2011, er eftirfarandi bókun:

Bókun 2 [2011] Framtíðarsýn í skólamálum

Aðilar eru sammála um að halda áfram vinnu á grundvelli sameiginlegrar framtíðarsýnar í skólamálum til ársins 2020, skv. sameiginlegum samningsmarkmiðum og markmiðum í kjarasamningi aðila frá 2008.

Í því skyni munu aðilar skipa tvo starfshópa með fulltrúum beggja aðila til að halda áfram þeirri vinnu sem lagður var grundvöllur að með vinnu starfshóps sem mótaði sameiginlega framtíðarsýn í skólamálum til ársins 2020.

Annar starfshópurinn mun m.a. fjalla um hlutverk kennara, innihald starfs þeirra og breytingar á störfum, auk þróunar skólastarfs almennt.

Hinn starfshópurinn mun fjalla um vinnutímakafla kjarasamnings og önnur ákvæði sem tengjast vinnutíma grunnskólakennara með það að markmiði að aðlaga hann að breyttum kröfum til skólastarfs.
Stefnt er að því að aðilar nái samkomulagi um breytingar fyrir 31. desember 2011. Það samkomulag verði borið undir félagsmenn FG í almennri atkvæðagreiðslu og skal niðurstaða hennar liggja fyrir eigi síðar en 16. febrúar 2012. Samþykki félagsmenn FG þær breytingar, taka þær gildi frá upphafi skólaársins 2012-2013. Felli félagsmenn FG umræddar breytingar eða náist ekki samkomulag um breytingatillögur, fellur kjarasamningurinn úr gildi frá 29. febrúar 2012 án sérstakrar uppsagnar.

Starfshóparnir tveir hafa fundað reglulega í vetur. Verkefni beggja hópa eru vandasöm og yfirgripsmikil og byggja þarf vinnu þeirra á ýtarlegri greiningarvinnu og umræðu. Vinnu hópanna miðar vel áfram en hins vegar er ljóst að sá tími sem samningsaðilar ætluðu í verkið var of skammur til að settum markmiðum verði náð.

Þrátt fyrir að kjarasamningurinn hafi gildistíma til 31. mars 2014, felur ákvæði bókunar 2 í sér að hafi aðilar ekki náð samkomulagi um breytingar á samningnum, sem bornar verði undir atkvæðagreiðslu félagsmanna FG,  þá falli hann úr gildi frá 29.febrúar 2012.  Þar sem ekki enn hefur náðst að ljúka vinnunni hafa samningsaðilar sammælst um að halda viðræðum áfram á grundvelli bókunar 2 og jafnframt að nauðsynlegt sé að rýmka þann tímaramma sem verkefninu var settur í maí 2011. Gerð verður ný viðræðuáætlun ásamt tímasettri aðgerðaáætlun um framgang viðræðna næstu mánuði og þeirra verkefna sem fylgja bókun 2.

Samkvæmt ákvæðum 2. mgr. 12. gr. laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna, skal farið eftir ákvæðum útrunnins kjarasamnings uns nýr kjarasamningur hefur verið gerður. Venja hefur verið talin fyrir því að umsamdar breytingar á kjarasamningi, sem áætlaðar eru eftir þann tíma sem kjarasamningi lýkur, komi ekki til framkvæmda. Þetta á t.d. við um kjarasamningsbundnar launahækkanir og hækkanir ýmissa liða vegna breytinga á vísitölu. Þó eru dæmi um að slíkar hækkanir hafi verið greiddar, þótt samningi hafi verið sagt upp.

Senda grein

Verkefni sveitarfélaga



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica