Jöfnunarsjóður sveitarfélaga
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga starfar á grundvelli laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur á hendi yfirstjórn Jöfnunarsjóðs, en honum til ráðuneytis er fimm manna ráðgjafarnefnd sem skipuð er til fjögurra ára að afloknum sveitarstjórnarkosningum. Fjórir nefndarmenn eru skipaðir samkvæmt tilnefningu frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, en einn er skipaður af samgöng- og sveitarstjórnarráðherra án tilnefningar og er hann jafnframt formaður nefndarinnar.
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga var stofnaður árið 1937 og í tímans rás hefur starfsemi hans tekið ýmsum breytingum. Nú hefur jöfnunarsjóður annars vegar það hlutverlk að greiða sveitarfélögum framlög til jöfnunar á tekjumöguleikum þeirra og útgjaldaþörf eftir ákveðnu regluverki. Hins vegar greiðir sjóðurinn hlutdeild í húsaleigubótum til allra sveitarfélaga og lögbundin framlög til stofnana og samtaka sveitarfélaga.
Um 10% af heildartekjum sveitarfélaganna koma úr jöfnunarsjóði.
- Skýrsla starfshóps um endurskoðun á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
- Kynning Flosa Eiríkssonar, formanns starfshópsins
