Afstaða sambandsins til frumvarps um opinber innkaup
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur sent fjármálaráðuneytinu umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 84/2007 um opinber innkaup.
Tilgangur frumvarpsins er að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2007/66/EB (sk. Remedies Directive), sem kveður á um skyldu aðildarríkja til að koma á fót skilvirkri og skjótri kærumálsmeðferð á sviði opinberra innkaupa og tryggja jafnræði bjóðenda.
Ljóst virðist að ef frumvarpið verður óbreytt að lögum getur það leitt til verulegra tafa á opinberum framkvæmdum og haft í för með sér mikinn kostnaðarauka og óhagræði fyrir ríki og sveitarfélög vegna þeirrar miklu réttaróvissu sem stafar af einstökum ákvæðum frumvarpsins.
Sambandið telur ríka ástæðu til þess að kalla eftir ítarlegum rökstuðningi frá ráðuneytinu um ástæður þess að ekki er gerður neinn greinarmunur í frumvarpinu á því hvort innkaup eru á innanlandsmarkaði eða útboðsskyld á EES-svæðinu. Í því samhengi er sérstaklega óskað eftir áliti ráðuneytisins á því hver áhrif frumvarpsins verða fyrir útboðsmál sveitarfélaga.
Með vísan til þeirra athugasemda sem fram koma í umsögninni telur sambandið nauðsynlegt að helstu hagsmunaaðilar verði boðaðir til samráðs um efni frumvarpsins áður en ákvörðun verður tekin um framlagningu þess.

