Álagningarhlutföll og heildarálagning fasteignaskatts
Hag og upplýsingasvið hefur tekið saman í töflu sem sýnir álagningarhlutföll og heildarálagningu fasteignaskatts sveitarfélaga fyrir árið 2010 vegna A- og C hluta. Til frekari skýringar eru birtar upplýsingar um leyfilega hámarksnýtingu fasteignaskatts.
Álagningarhlutfall fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði (A stofn) er mjög misjafnt milli sveitarfélaga. Helgast það af því hve fasteignamat íbúðarhúsnæðis er misjafnt á landinu. Mun minni munur er milli sveitarfélaga á álagningarhlutfalli fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði (C stofn).

