Vistunarmat vegna dvalarrýmis aldraðra
Sveitarfélögum er ætlað stórt hlutverk við gerð Vistunarmats vegna dvalarrýmis aldraðra. Umsóknum um dvalarrými fyrir aldraða skal skilað inn til félagsþjónustu lögheimilis sveitarfélags sbr. reglugerð um vistunarmat vegna dvalarrýmis nr. 543/2008. Mat á þörf fyrir dvalarrými er faglegt, einstaklingsbundið mat á þörfum einstaklinga fyrir varanlega búsetu í dvalarrými á stofnun á vegum velferðarráðuneytis. Við umsóknum taka starfsmenn félagsþjónustunnar sem síðan meta félagslegar aðstæður og athafnagetu umsækjanda en matið gefur til kynna hvort og þá hversu mikil þörf er fyrir langtímabúsetu á dvalarheimili. Stefna sveitarfélaganna er samt sem áður sú að þeir einstaklingar sem þess óska geti búið sem lengst á eigin heimili með viðeigandi þjónustu.
