Þjónusta við aldraða

Markmið laga um málefni aldraðra er að tryggja að aldraðir eigi völ á þeirri heilbrigðis- og félagsþjónustu sem þeir þurfa á að halda og að hún sé veitt á því þjónustustigi sem er eðlilegast miðað við þarfir hvers og eins. Einnig er markmið laganna að aldraðir geti eins lengi og unnt er búið við eðlilegt heimilislíf en sé jafnframt tryggð stofnanaþjónusta þegar hennar er þörf. Við framkvæmd laganna skal þess gætt að aldraðir njóti jafnréttis á við aðra þjóðfélagsþegna og að sjálfsákvörðunarréttur þeirra sé virtur.

Öldrunarþjónusta

Helstu þættir þjónustu við aldraða eru félagsleg heimaþjónusta og þjónusta í þjónustumiðstöðvum aldraðra á vegum sveitarfélaga, heimahjúkrun á vegum heilsugæslustöðva, dagvistun, endurhæfingar- og hvíldarinnlagnir eða búseta í dvalarrými eða hjúkrunarrými á stofnunum aldraðra.

Félagsleg heimaþjónusta

Aldraðir í heimahúsum eiga rétt á félagslegri heimaþjónustu geti þeir ekki hjálparlaust annast heimilishald og persónulega umhirðu. Sveitarfélög veita þessa þjónustu á grundvelli laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 en setja sjálf nánari reglur um framkvæmdina.

Fleira gagnlegt um þjónustu sveitarfélaga við aldraðra á vef félagsmálaráðuneytisins.

Fundargerðir verkefnisstjórnar um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga á sviði velferðarmála.




Senda grein

Verkefni sveitarfélaga



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica