Samráðsfundur um málefni barna með fötlun og fjölskyldna þeirra
Samráðsdagur Sambands íslenskra sveitarfélaga , Tryggingastofnunar ríkisins og Greiningar- og ráðgjafastöðvar um málefni barna með fötlun og fjölskyldna þeirra verður haldinn þann 28. janúar nk. kl. 9.00 – 13.00 í BSRB salnum við Grettisgötu í Reykjavík.
Samráðsdagurinn er hugsaður sem vinnufundur fyrir starfsfólk félagsþjónustu sveitarfélaga um málefni barna með fötlun og fjölskyldna þeirra, sérstaklega vegna yfirfærslu málaflokks fatlaðs fólks frá ríki til sveitarfélaga.

| 09:00 | Gyða Hjartardóttir, félagsþjónustufulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga setur samráðsdaginn. |
| 09:10 | Stefán Hreiðarsson, forstöðumaður Greiningar- og ráðgjafastöðvarinnar, mun fjalla um fatlanir og greiningarvinnu, svo og samstarf Greiningarstöðvar við sérfræðiþjónustu sveitarfélaga. |
| 09:45 | Kaffi og spjall. |
| 10:00 | Sverrir Óskarsson, félagsráðgjafi hjá Tryggingastofnun ríkisins mun fjalla um þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra. |
| 10:40 |
Heiðar Örn Arnarson frá Sjúkratryggingum Íslands mun kynna aðkomu SÍ að málaflokknum og samstarfi við sveitarfélög vegna barnafjölskyldna. |
| 11:00 | Karólína Gunnarsdóttir, þroskaþjálfi hjá Akureyrarbæ mun fjalla almennt um framkvæmdina og reynslu Aureyrarbæjar af því að vinna í samstarfi við TR og Greiningarstöðina um málefni fatlaðra barna og fjölskyldna þeirra. |
| 11:45 | Umræður. |
| 12:00 | Samráðsdegi slitið. |
| 12:00 | Léttur hádegismatur í boði Sambands íslenskra sveitarfélaga. |
Fundarstjóri: Gyða Hjartardóttir, félagsþjónustufulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga.