NPA: Hugmyndafræði, framkvæmd, skipulag, samningar og fjármögnun.
Opin ráðstefna á vegum verkefnisstjórnar um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) verður haldin á Icelandair Hótel Reykjavík Natura föstudaginn 10. febrúar 2012. Ráðstefnan verður haldin undir yfirskriftinni: Hugmyndafræði, framkvæmd, skipulag, samningar og fjármögnun. Fjallað verður um stöðuúttekt á vinnu verkefnisstjórnar um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) og lýsing á verklagi í fyrsta áfanga verkefnisins.
Skráning fer fram á vef velferðarráðuneytisins á slóðinni. http://www.vel.is/npa
Dagskrá
| 10.30 | Skráning |
| 11.00 |
Ávarp. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra. |
| 11.10 |
Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) – leiðbeiningar um framkvæmd fyrir þjónustusvæði, sveitarfélög, notendur og aðstoðarfólk. Guðmundur Steingrímsson, alþingismaður og formaður verkefnisstjórnar NPA. |
| 12.10 |
Fyrirkomulag við ráðningar á aðstoðarfólki – ráðningarsamningar, kaup og kjör. Sólveig B. Gunnarsdóttir, lögfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. |
| 12.30 |
Aðkoma Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga að greiðslum vegna NPA. Guðni Geir Einarsson, sérfræðingur í innanríkisráðuneytinu. |
| 12.40 |
Léttar veitingar. |
| 13.30 |
Hugmyndafræði NPA. Freyja Haraldsdóttir og Embla Ágústsdóttir, frá NPA-miðstöðinni. |
| 13.55 |
Hvernig ber fólk sig að? Framkvæmd NPA hjá þjónustusvæðum og sveitarfélögum. Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir verkefnisstjóri. |
| 14.15 |
Þjónustusamningar milli notenda og þjónustusvæða/sveitarfélaga. Þór Garðar Þórarinsson, sérfræðingur í velferðarráðuneytinu. |
| 14.40 |
Hlutverk notenda við framkvæmd notendastýrðar persónulegrar aðstoðar (NPA) – verkstjóri – vinnuveitandi? Guðjón Sigurðsson, formaður MND-félagsins. Bryndís Snæbjörnsdóttir foreldri. |
| 15.20 |
Samantekt. Guðmundur Steingrímsson, formaður verkefnisstjórnar NPA. |
| 15.45 |
Léttar veitingar. |
Ráðstefnustjóri: Gyða Hjartardóttir, félagsþjónustufulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Bein útsending verður frá ráðstefnunni á Netinu og verður aðgengileg á vef velferðarráðuneytisins: http://www.vel.is/npa
Þeir sem kjósa að fylgjast með ráðstefnunni á vefnum skrái sig á heimasíðu NPA http://www.vel.is/npa og munu gögn sem kynnt verða á ráðstefnunni verða send viðkomandi.
Óski þátttakendur sérstaks stuðnings við að taka þátt í ráðstefnunni eru þeir beðnir um að koma þeim óskum á framfæri fyrir 1. febrúar næstkomandi á vef verkefnisstjórnarinnar: http://www.vel.is/npa

