Fréttir - Félagsþjónusta
  • SIS_Felagsthjonusta_760x640

23.1.2012

Bæklingur um fjárhagsaðstoð sveitarfélaga

Samband íslenskra sveitarfélaga hefur gefið út bækling um fjárhagsaðstoð sveitarfélaga, en sveitarfélögum er skylt að veita fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki geta séð sér og sínum farborða án aðstoðar. 

Samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 er sveitarfélögum skylt að útbúa sér reglur um fjárhagsaðstoð en í bæklingum er farið yfir það sem almennt gildir í öllum sveitarfélögum en ekki farið yfir reglur einstakra sveitarfélaga. Hugmyndin á bak við gerð bæklingsins er að starfsfólk sveitarfélaga geti notað hann til þess að auðvelda notendum þjónustunnar að fá, á aðgengilegan hátt, upplýsingar um fjárhagsaðstoð sveitarfélaga.

Þannig geta notendur á einfaldan hátt fengið upplýsingar um það hvort að viðkomandi eigi rétt á aðstoð eða ekki, sem mun væntanlega létta á leiðbeiningarhlutverki  starfsfólks félagsþjónustu sveitarfélaga. Hugmyndin er einnig sú að samstarfsaðilar eins og Vinnumálastofnun og Tryggingastofnun ríkisins geti leiðbeint sínum notendum um rétt sinn hjá sveitarfélögunum með því að kynna fólki bæklinginn.

Bæklingurinn er aðgengilegur hér á vefsíðu sambandsins.

Senda grein

Verkefni sveitarfélaga



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica