Fréttir - Félagsþjónusta

mappa

25.1.2012 : Leiðbeinandi reglur um þrjá þætti í þjónustu við fatlað fólk

Velferðarráðuneytið hefur gefið út leiðbeinandi reglur fyrir sveitarfélög um framkvæmd þjónustu við fatlað fólk. Leiðbeiningarnar taka til þjónustu stuðningsfjölskyldna, ferðaþjónustu auk styrkja til náms og tækjakaupa fatlaðs fólks.

Lesa meira
 
PPP_PRD_132_3D_people-Puzzle

24.1.2012 : NPA: Hugmyndafræði, framkvæmd, skipulag, samningar og fjármögnun.

Opin ráðstefna á vegum verkefnisstjórnar um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) verður haldin á Icelandair Hótel Reykjavík Natura föstudaginn 10. febrúar 2012.

Lesa meira
 
SIS_Felagsthjonusta_760x640

23.1.2012 : Bæklingur um fjárhagsaðstoð sveitarfélaga

Samband íslenskra sveitarfélaga hefur gefið út bækling um fjárhagsaðstoð sveitarfélaga, en sveitarfélögum er skylt að veita fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki geta séð sér og sínum farborða án aðstoðar. 

Lesa meira
 
Felagsthjonustuskyrsla

3.1.2012 : Skýrsla  um félagsþjónustu sveitarfélaga 2011 á rafrænu formi

Félagsþjónustuskýrsla 2011 er nú komin út á rafrænu formi. Í skýrslunni eru í fyrsta sinn dregnar saman og gefnar út svo yfirgripsmiklar upplýsingar um félagsþjónustu sveitarfélaga. Markmiðið með útgáfu skýrslunnar er að birta tölulegar upplýsingar um þennan mikilvæga málaflokk og gera þær aðgengilegar fyrir sveitarstjórnarmenn, starfsmenn félagsþjónustu sveitarfélaga og aðra þá sem vilja fylgjast með því hvernig framkvæmd félagsþjónustunnar þróast.

Lesa meira
 
SIS_Felagsthjonusta_760x640

7.12.2011 : Styrkir til gæðaverkefna árið 2011

Velferðarráðuneytið auglýsir styrki vegna gæðaverkefna árið 2011. Að þessu sinni verður sérstök áhersla lögð á verkefni tengd samþættingu heilbrigðis- og félagsþjónustu, s.s. verkefni sem stuðla að umbótastarfi, nýbreytni eða auknum gæðum þjónustunnar. Önnur gæðaverkefni koma einnig til álita. Lesa meira
 

Eldri fréttir


Verkefni sveitarfélaga



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica