Þjónustusvæði
Samkvæmt frv. til 4. gr. laga um málefni fatlaðra er landinu skipt í þjónustusvæði og er miðað við að á hverju þjónustusvæði séu að lágmarki 8.000 íbúar. Þessi stærðarmörk ráða nokkru um fjölda þjónustusvæða, en jafnframt er gert ráð fyrir því að ráðherra geti veitt undanþágu frá þessu viðmiði um íbúafjölda. Undanþága myndi þá byggjast á landfræðilegum aðstæðum en jafnframt er gengið út frá því að viðkomandi sveitarfélag eða sveitarfélög hafi sýnt fram á getu til að veita þjónustu í samræmi við ákvæði laga.
Í byrjun nóvember höfðu eftirtalin sveitarfélög tekið ákvarðanir um myndun þjónustusvæða eins og hér greinir:
- Mosfellsbær
- Garðabær
- Reykjavíkurborg og Seltjarnarneskaupstaður
- Kópavogsbær
- Hafnarfjarðarkaupstaður
- Þjónustusvæði Suðurlands (13 sveitarfélög): Bláskógarbyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur, Hveragerðisbær, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Sveitarfélagið Árborg, Sveitarfélagið Ölfus, Flóahreppur, Ásahreppur, Mýrdalshreppur, Rangárþing eystra, Rangárþing ytra og Skaftárhreppur
- Þjónustusvæði Suðurnesja (5 sveitarfélög): Reykjanesbær, Sandgerðisbær, Sveitarfélagið Garður, Sveitarfélagið Vogar og Grindavíkurbær
- Þjónustusvæði Vesturlands (10 sveitarfélög): Borgarbyggð, Skorradalshreppur og Dalabyggð, Akraneskaupstaður og Hvalfjarðarsveit, Snæfellsbær, Stykkishólmsbær, Grundafjarðarbær, Helgafellssveit og Eyja- og Miklaholtshreppur
- Þjónustusvæði Norðurlands vestra (10 sveitarfélög): Sveitarfélagið Skagafjörður, Fjallabyggð, Akrahreppur, Sveitarfélagið Skagaströnd, Skagabyggð, Blönduósbær, Húnaþing vestra, Húnavatnshreppur, Bæjarhreppur, Dalvíkurbyggð
- Þjónustusvæði Austurlands (8 sveitrfélög): Fljótsdalshérað, Vopnafjörður, Borgarfjarðarhreppur, Seyðisfjarðarkaupstaður, Fljótsdalshreppur, Djúpavogshreppur, Fjarðabyggð, Breiðdalshreppur
- Þjónustusvæði Eyjafjarðar (5 sveitarfélög): Akureyrarkaupstaður, Eyjafjarðarsveit, Svalbarðsstrandahreppur, Hörgársveit og Grýtubakkahreppur
Á sama tíma höfðu eftirfarandi sveitarfélög sótt um undanþágu frá 8.000 íbúa viðmiðinu:
- Þjónustusvæði Vestfjarða (9 sveitarfélög): Árneshreppur, Bolungarvíkurkaupstaður, Ísafjarðarbær, Kaldrananeshreppur, Reykhólahreppur, Standabyggð, Súðavíkurhreppur, Tálknafjarðahreppur og Vesturbyggð
- Sveitarfélagið Hornafjörður
- Þjónustusvæði Norðausturlands (6 sveitarfélög): Skútustaðahreppur, Þingeyjasveit, Norðurþing, Tjörneshreppur, Svalbarðshreppur og Langanesbyggð
- Vestmannaeyjabær
Félags- og tryggingamálaráðherra mun taka afstöðu til undanþágubeiðnarinnar þegar frv. til 4. gr. laga um málefni fatlaðra hefur fengið meðferð á Alþingi.
Hér til hliðar er kort af landinu verði skipting í þjónustusvæði eins og að ofan greinir.
- Kort af þjónustusvæðunum
- Spurt og svarað um yfirfærsluna
