Félagsþjónustunefnd

Samkvæmt stefnumörkun Sambands íslenskra sveitarfélaga 2009 til 2010 var sett á laggirnar sérstök ráðgefandi nefnd fyrir stjórn og starfsmenn sambandsins á síðari hluta árs 2009. Í erindisbréfi nefndarinnar segir m.a.:

Hlutverk nefndarinnar er að vera ráðgefandi fyrir stjórn og starfsmenn sambandsins um verkefni sveitarfélaga á sviði félagsþjónustu og flutning verkefna á því sviði frá ríki til sveitarfélaga.

Meðal verkefna nefndarinnar er að gera tillögur um áherslur og stefnumótun sveitarfélaga á sviði nefndarinnar, svo sem í málefnum fatlaðra og aldraðra, barnaverndarmálum og húsnæðismálum; gefa álit um lagafrumvörp og reglugerðir að beiðni stjórnar og starfsmanna sambandsins; vekja athygli á málum sem nefndin telur að þarfnist úrlausnar á vettvangi sambandsins, sem og á þróun og breytingum, innanlands og erlendis, sem nefndin telur þörf á að sambandið vinni að eða miðli upplýsingum um og vera til ráðgjafar við undirbúning viðburða sambandsins á sviði félagsþjónustumála.

Í nefndinni eiga sæti:

  • Stella Víðisdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar
  • Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar
  • Guðrún Sigurðardóttir, deildarstjóri fjölskyldudeildar Akureyrarkaupstaðar
  • Aðalsteinn Sigfússon, félagsmálastjóri Kópavogsbæjar
  • Kristín Þyrí Þorsteinsdóttir, félagsmálastjóri Sandgerðisbæjar, Garðs og Voga

 

Fundargerðir félagsþjónustunefndar

 

 

Senda grein

Verkefni sveitarfélaga



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica