Fréttir - alþjóðamál
  • logo-norraena

24.1.2012

Styrkir til stofnunar tengslaneta við Baltnesku ríkin

Norræna ráðherranefndin styrkir námsferðir starfsmanna ríkis, sveitarfélaga og sveitarfélagasamtaka í norrænu og baltnesku ríkjunum til að kynna sér stjórnsýslu og stofna til gagnkvæmra tengslaneta. Ekki eru styrktar ferðir innan Norðurlandanna, heldur á milli þeirra og baltnesku ríkjanna.

Hvert styrkjaverkefni verður að hafa þátttakendur frá a.m.k. þremur landanna. Eingöngu eru veittir styrkir vegna ferða- og uppihaldskostnaðar að hámarki 110 EUR á dag. Þátttakendur þurfa sjálfir að bera 30% af kostnaði.  Frestur til að sækja um á þessu ári er til 30. mars nk.

Nánari upplýsingar á þessum tengli og á meðfylgjandi pdf-skjali.

Senda grein

Verkefni sveitarfélaga



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica