Menningaráætlun ESB

Culture 2007-2013  culturemyndMenningaráætlun ESB er ætlað að ýta undir menningarsamskipti Evrópubúa og útbreiða evrópska menningu. Áætlunin nær til allra listgreina, menningararfleifðar og menningarsögu. Meðal annars er veittur stuðningur við samstarfsnet, rannsóknir, starfsþjálfun, námskeið, vinnubúðir, nýsköpun, sýningar, hátíðir, ráðstefnur, þýðingar og fleira.  Skilyrði er að verkefnið sé samstarfsverkefni að minnsta kosti þriggja aðildarlanda.

Markmið áætlunarinnar er að stuðla að samstarfi þeirra sem starfa að menningarmálum og efla þannig menningarstarf og menningararf Evrópu. Handbók um yfirstandandi verkefnatímabil veitir nánari upplýsingar um áætlunina.

Upplýsingaskrifstofa menningaráætlana ESB hefur umsjón með áætluninni á Íslandi

MEDIA-áætlunin: mediamynd MEDIA er skammstöfun á "Measures to Encourage the Development of the European Industry of the Audiovisual Production" sem útleggst á íslensku, átak til eflingar evrópskum kvikmynda-, sjónvarps- og margmiðlunariðnaði. 

MEDIA-áætluninni er ætlað að styðja við evrópska hljóð/myndræna (,,audiovisual") iðnaðinn með stuðningsaðgerðum við: menntun, undirbúning verkefna eða verkefnapakka, dreifingu og markaðssetningu myndefnis. Þessi stuðningur er yfirleitt í formi styrkja eða vaxtalausra og skilyrtra lána.

 Markmið MEDIA er:

  • að styrkja alþjóðlega dreifingu á evrópskum myndum og margmiðlunarefni.
  • að efla samspil á milli markaðsins og styrkjakerfa.
  • að vera nógu sveiganlegt til að geta aðlagað sig að tækniþróun sem vafalítið mun eiga sér stað á tímabilinu.
  • að styrkja sérstaklega verkefni frá svæðum með "veikan" kvikmynda-, sjónvarps- og margmiðlunariðnað.
  • að styrkja sérstaklega verkefni frá "litlum málsvæðum".

Þó áætlunin nýtist sveitarfélögunum sennilega ekki beint, geta fyrirtæki og einstaklingar innan þeirra komið áhugaverðum verkefnum í framkvæmd í gegnum áætlunina.  Þau verkefni gætu síðan verið unnin í samvinnu við sveitarfélögin, t.d. með uppsetningu á kvikmyndahátíðum eða framleiðslu á heimildaþáttum eða kvikmyndum. 



Verkefni sveitarfélaga



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica