Áætlun gegn ofbeldi Daphne III
Áætlun gegn ofbeldi, Daphne III 2008-2013: Markmið áætlunarinnar er að leita leiða til stemma stigu við hverskyns ofbeldi gegn börnum, ungu fólki og konum og öðrum hópum sem kunna að vera í sérstakri hættu. Meginmarkmiðið er að hvetja til og koma á fót skammtíma- og langtímaverkefnum sem ætlað er að vernda þessa hópa fyrir hvers kyns ofbeldi, efla stuðning við þolendur ofbeldis og stuðla að bættu líkamlegu og andlegu heilbrigði. Þeir sem geta sótt um styrk til verkefna eru frjáls félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög og allir sem vilja vinna gegn ofbeldi gegn börnum og konum. Nánari upplýsingar er að finna á vefslóðinni:
Gagnagrunn með gagnlegum upplýsingum fyrir umsækjendur er að finna hér.
Félags- og tryggingamálaráðuneytið hefur umsjón með áætluninni, tengiliður er Linda Rós Alfreðsdóttir.
