Evrópusamtök sveitarfélaga CEMR
Samband íslenskra sveitarfélaga á aðild að Evrópusamtökum sveitarfélaga, „The Council of European Municipalities and regions“ sem er skammstafað CEMR. Samtökin eru stærstu samtök sveitarstjórnarstigsins í Evrópu. Aðild að þeim eiga yfir 50 landssambönd bæja, sveitarfélaga og héraða frá 39 löndum Evrópu. Samtökin eru í fyrirsvari fyrir um 100.000 sveitarfélög og héruð í Evrópu.
Samtökin vinna að framgangi hugsjóna um sameinaða Evrópu sem grundvallist á sjálfsstjórnarrétti sveitarfélaga og héraða og lýðræðislegum gildum. Til þess að ná þessu markmiði leitast samtökin við að hafa áhrif á framtíð Evrópu með því að koma framlagi sveitarfélaga og héraða á framfæri, með því að hafa áhrif á evrópska löggjöf og stefnumótun, og með því að láta sveitarfélög og héruð skiptast á reynslu og stofna til samstarfs milli þeirra og aðila frá öðrum heimshlutum.
CEMR vinnur á mörgum sviðum, svo sem að byggða- og atvinnuþróunarmálum, samgöngumálum, umhverfismálum, jafnréttismálum og stjórnunarmálum. Nefndir og vinnuhópar samtakanna leitast við að hafa áhrif á evrópska löggjöf, sem verið er að vinna að, til að tryggja að það sé tekið tillit til hagsmuna sveitarstjórnarstigsins frá undirbúningi löggjafar ESB á frumstigi.
CEMR lýtur pólitískri yfirstjórn sem samanstendur af stefnumótunarnefnd, „Policy Committee“, sem heldur venjulega fundi tvisvar á ári. Það er aðal stjórnunarvettvangur CEMR. Öll aðildarríki CEMR eiga fulltrúa í nefndinni. Stjórn sambandsins tilnefnir þrjá fulltrúa til að taka þátt í störfum nefndarinnar.
Þriðja hvert ár er haldið allsherjarþing CEMR sem dregur að sér mörg hundruð evrópska sveitarstjórnarmenn. Síðasta þingið var haldið í borginni Málmey í Svíþjóð árið 2009 og það næsta verður væntanlega haldið í spænsku borginni Cadiz 26.-28. september 2012.
Framkvæmdastjórn tekur ákvarðanir á milli funda stefnumótunarnefndarinnar. Núverandi forseti CEMR er Wolfgang Schuster borgarstjóri í Stuttgart. Framkvæmdastjóri samtakanna er Frédéric Vallier.
Aðalhagsmunastarf CEMR fer fram í vinnuhópum sem spanna helstu áherslusvið samtakanna. Hóparnir hittast flestir tvisvar á ári. Oftast eru það starfsmenn sveitarfélagasamtaka í Brussel eða sérfræðingar þeirra að heiman, sem taka þátt í fundum þessara hópa.
Sambandið hefur tilnefnt ákveðna sérfræðinga sem tengiliði við einstaka vinnuhópa CEMR. Þessir tengiliðir fá send fundargögn og mikilvægustu fundirnir eru sóttir af þeim eða starfsmanni Brusselskrifstofu sambandsins.
