Umsóknarfrestur vegna námsheimsókna 2010-2011 rennur út 31. mars

Frestur vegna námsheimsókna rennur út 31.mars

Minnum á að umsóknarfrestur um námsheimsóknir fyrir tímabilið september 2010 til febrúar 2011 rennur út 31. mars 2010. 

Auglýst er eftir umsóknum um námsheimsóknir skólaárið 2010 - 2011. Sú nýbreytni er nú tekin upp að umsóknarfrestir eru tveir. Fyrri umsóknarfrestur fyrir tímabilið september 2010 - febrúar 2011, er 31. mars 2010, og seinni umsóknarfrestur fyrir mars - júní 2011, er 15. október 2010. 

Landskrifstofa Menntaáætlunar Evrópusambandsins hefur sem fyrr umsjón með námsheimsóknum, en allar nánari upplýsingar um heimsóknirnar koma fram í yfirlitsriti sem CEDEFOP stofnunin í Grikklandi sér um að gefa út. Yfirlitsritið má nálgast á vefsíðunni: http://www.cedefop.europa.eu/EN/publications/15186.aspx 

Umsóknir skal fylla út rafrænt, en útprentuðu eintaki skal skila til: 
Landskrifstofu Menntaáætlunar Evrópusambandsins, 
Tæknigarði, Dunhaga 5, 
107 Reykjavík. 

Allar nánari upplýsingar um heimsóknirnar fást hjá Ástu Sif Erlingsdóttur, netfang: astasif@hi.is, sími: 525 4227.



Verkefni sveitarfélaga



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica