Tvær umsagnir um frumvörp til laga sendar til Alþingis
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur sent tvær umsagnir um frumvörp til laga til Alþingis. Annars vegar er um að ræða umsögn um frumvarp til laga um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, 219. mál og hins vegar um frumvarp til laga um skeldýrarækt.
Í umsögn um frumvarp til laga um greiðslu kostnaðar við opinbert gagnrýnir sambandið þá tekjuaukningu fyrir Fjármálaeftirlitið sem felst í frumvarpinu hafiáhrif á þann heildarramma sem markaður hefur verið varðandi útgjöld hins opinbera á næsta ári. Einnig telur sambandið rétt að árétta þá meginreglu, sem bæði ríki og sveitarfélögum ber að fara eftir í sinni starfssemi, að eftirlitsgjöld eiga aðeins að standa undir raunkosntaði við eftirlitið.
Sambandið gerir verulegar athugasemdir við frumvarp til laga um skeldýrarækt. Er það í samræmi við umsögn sem sambandið veitti við frumvarp sama efnis sem lagt var fram á 138. löggjafarþingi. Enn vekur sambandið athygli á því að heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga er ekki ætlað neitt eftirlits- eða umsagnarhlutverk samkvæmt frumvarpinu, þrátt fyrir að eftirlitið hafi umsjón með mengunarvörnum og eftirlit með fráveitum sveitarfélaga.
Umsagnir um bæði frumvörpin má lesa á umsagnarsíðu 139. löggjafarþings.

